Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 20. nóvember 2017 09:00
Magnús Már Einarsson
Benítez: Pogba ekki kominn á sama stað og Gerrard
Pogba sneri aftur um meiðsli um helgina.
Pogba sneri aftur um meiðsli um helgina.
Mynd: Getty Images
Paul Pogba, miðjumaður Manchester United, þarf að gera ná meiri stöðugleika í frammistöðu sína áður en hægt verður að bera hann saman við Steven Gerrard.

Þetta sagði Rafael Benítez, stjóri Newcastle, eftir 4-1 tap gegn United á laugardag. Pogba skoraði eitt mark og lagði upp annað í leiknum.

„Þeir eru mismunandi. Stevie var topp leikmaður í svo mörg ár. Hann sýndi mjög mikinn stöðugleika og gat gert gæfumuninn í hverjum leik, með eða án bolta," sagði Benítez.

„Hann var toppleikmaður. Pogba er frábær leikmaður en hann þarf að ná stöðugleika í nokkur ár eins og Stevie náði í 10 eða 15 ár."

„Pogba er ekki minn leikmaður svo ég þarf ekki að tala of mikið um hann. Hann er frábær leikmaður eins og flestir leikmenn Manchester United."

Athugasemdir
banner
banner
banner