Verona 2 - 3 Bologna
1-0 Alessio Cerci ('12)
1-1 Mattia Destro ('22)
2-1 Martin Caceres ('33)
2-2 Orji Okwonkwo ('74)
2-3 Godfred Donsah ('76)
1-0 Alessio Cerci ('12)
1-1 Mattia Destro ('22)
2-1 Martin Caceres ('33)
2-2 Orji Okwonkwo ('74)
2-3 Godfred Donsah ('76)
Verona fékk Bologna í heimsókn í mánudagsleiknum á Ítalíu og úr varð meiri skemmtun en margir hefðu búist við.
Bæði lið voru búin að tapa fjórum deildarleikjum í röð og mættu því grimm til leiks.
Alessio Cerci kom heimamönnum yfir snemma leiks og jafnaði Mattia Destro tíu mínútum síðar, áður en Martin Caceres kom Verona yfir á nýjan leik.
Orji Okwonkwo jafnaði fyrir Bologna á 74. mínútu og gerði Godfred Donsah sigurmarkið skömmu síðar.
Verona er nú búið að tapa fimm leikjum í röð og er aðeins með sex stig eftir þrettán umferðir. Bologna er um miðja deild, með 17 stig.
Athugasemdir