Adam Lallana snýr aftur eftir meiðsli þegar Liverpool mætir Sevilla í Meistaradeildinni á morgun.
Enski landsliðsmaðurinn hefur ekkert spilað síðan hann meiddist aftan í læri á undirbúningstímabilinu. Sigurleikurinn gegn Southampton á laugardag kom of snemma fyrir Lallana en hann ferðaðist með Liverpool í leikinn gegn Sevilla.

Jurgen Klopp sagði í síðustu viku að það væru frábærar fréttir að Lallana væri farinn að æfa af krafti og að hann yrði mikilvægur það sem eftir lifir tímabils.
Joel Matip verður ekki með á morgun vegna meiðsla líkt og gegn Southampton um helgina. Hann gæti náð leik Liverpool gegn Chelsea á laugardaginn.
Sigur á morgun innsiglar sæti Liverpool í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar en hér að neðan má sjá stöðuna í riðlinum.
Leikmannahópur Liverpool: Karius, Wijnaldum, Lovren, Milner, Firmino, Coutinho, Salah, Gomez, Henderson, Sturridge, Grujic, Klavan, Moreno, Mane, Lallana, Oxlade-Chamberlain, Mignolet, Can, Robertson, Ings, Solanke, Ward, Alexander-Arnold.
Athugasemdir