Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 20. nóvember 2017 11:00
Magnús Már Einarsson
Sergio Ramos nefbrotinn
Sergio Ramos í leiknum um helgina.
Sergio Ramos í leiknum um helgina.
Mynd: Getty Images
Sergio Ramos, fyrirliði Real Madrid, gæti misst af næstu leikjum liðsins.

Ramos nefbrotnaði í markalausu jafntefli gegn nágrönnunum í Atletico Madrid um helgina.

Ramos meiddist eftir samstuð við Lucas Hernandez, varnarmann Atletico, í fyrri hálfleiknum.

Eftir smá aðhlynningu þá kláraði Ramos fyrri hálfleikinn áður en Lucas Hernandez leysti hann af hólmi.

Real Madrid segir að meiðslin verði skoðuð betur á næstu dögum og þá komi í ljós hversu lengi Ramos verði frá keppni.
Athugasemdir
banner
banner
banner