Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mán 20. nóvember 2017 22:30
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu markið: Albert lék á markvörðinn
Mynd: Raggi Óla
Albert Guðmundsson er búinn að gera átján mörk í átján síðustu leikjum sínum fyrir unglingalið PSV Eindhoven.

Albert gerði seinna markið í 2-0 sigri á unglingaliði Utrecht og eru Albert og félagar með 18 stig eftir 13 umferðir í næstefstu deild hollenska boltans.

Augljóst er að Albert, sem er fyrirliði U21 árs landsliðs Íslands, á framtíðina fyrir sér en hann hefur komið við sögu í nokkrum efstudeildarleikjum með aðalliði PSV sem trónir þar á toppnum með átta stiga forystu.

Myndband af marki Alberts gegn Utrecht er hægt að sjá hér fyrir neðan, en hann leikur á markvörð andstæðinganna eftir laglegan undirbúning frá liðsfélaga.



Athugasemdir
banner
banner
banner