mán 20. nóvember 2017 22:03
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Eibar rúllaði yfir tíu leikmenn Betis
Mynd: Getty Images
Eibar 5 - 0 Real Betis
1-0 J. Amat ('6, sjálfsmark)
2-0 G. Escalante ('30)
3-0 Charles ('56, víti)
4-0 Charles ('71)
5-0 S. Enrich ('80)
Rautt spjald: A. Mandi, Betis ('55)

Leikmenn Real Betis bjuggust ekki við að skíttapa er þeir heimsóttu Eibar í mánudagsleiknum í spænska boltanum.

Heimamenn voru mun betri allan leikinn og náðu gestirnir í Real Betis ekki skoti á markið allan leikinn.

Staðan var 2-0 í hálfleik og var leikurinn svo gott sem tapaður þegar Charles gerði þriðja mark Eibar úr vítaspyrnu eftir að Aissa Mandi var rekinn af velli í liði gestanna.

Leiknum lauk með 5-0 stórsigri Eibar sem er núna fjórum stigum fyrir ofan fallsæti. Fyrir leikinn hafði Eibar gert 6 mörk í 11 leikjum.

Real Betis er í efri hluta deildarinnar með 17 stig, en liðið er aðeins búið að næla sér í 4 stig af síðustu 15.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner