Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 20. nóvember 2017 14:30
Magnús Már Einarsson
Viðar Örn orðaður við Anderlecht
Viðar fagnar marki gegn Katar í síðustu viku.
Viðar fagnar marki gegn Katar í síðustu viku.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viðar Örn Kjartansson, framherji Maccabi Tel Aviv, er orðaður við belgíska stórliðið Anderlecht í fjölmiðlum í Ísrael í dag.

Maccabi er hins vegar sagt hafa lítinn áhuga á að selja Viðar.

Fjölmiðlar í Ísrael segja að verðmiðinn á Viðari sé átta milljónir evra.

Hinn 27 ára gamli Viðar kom til Maccabi Tel Aviv frá Malmö í Svíþjóð í fyrrasumar.

Viðar varð markakóngur á síðasta tímabili í Ísrael en hann hefur skorað fjögur mörk í tíu leikjum í deildinni á þessu tímabili.

Í síðustu viku skoraði Viðar sitt annað landsliðsmark en hann skoraði þá í 1-1 jafntefli Íslands og Katar.
Athugasemdir
banner
banner
banner