Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mán 20. nóvember 2017 16:30
Magnús Már Einarsson
Yfirnjósnari Dortmund til Arsenal (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Arsenal hefur krækt í njósnarann Sven Mislintat frá Borussia Dortmund.

Mislintat mun stjórna kaupum á leikmönnum hjá Arsenal og taka við af yfirnjósnaranum Steve Rowley sem hefur starfað hjá félaginu í 25 ár.

Hinn 45 ára gamli Mislintat hefur starfað hjá Dortmund í tíu ár og vakið mikla athygli fyrir starf sitt.

Mislintat hefur fundið marga mjög góða leikmenn fyrir Dortmund á tíma sínum þar. Þar má nefna Robert Lewandowski, Pierre-Emerick Aubameyang, Christian Pulisic og Ousmane Dembele, sem varð dýrastur í sögu Barcelona í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner