Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 20. desember 2014 12:26
Arnar Geir Halldórsson
Godin ánægður hjá Atletico
Godin fagnar marki
Godin fagnar marki
Mynd: Getty Images
Úrugvæski varnarmaðurinn Diego Godin sem leikur fyrir Spánarmeistara Atletico Madrid hefur verið orðaður við Manchester United undanfarið.

Það er þó ekkert fararsnið á kappanum sem kveðst ánægður hjá Madrídarliðinu og sér fyrir sér að vera þar í mörg ár en Godin er 28 ára gamall.

,,Mér líður eins og ég sé á hátindi ferilsins og ég á mikið eftir. Ég væri til í að vera hér í mörg ár í viðbót. Einn daginn mun ég snúa aftur til Úrugvæ en það er erfitt að segja til um hvenær það verður," sagði Godin.

Godin hefur þó klásúlu í samning sínum sem gerir honum kleift að ræða við önnur lið ef tilboð uppá 29 milljónir evra berst.
Athugasemdir
banner
banner
banner