Paul Lambert var ánægður með stigið sem hans menn náðu í á Villa Park í dag.
Christian Benteke kom heimamönnum yfir en Radamel Falcao jafnaði í síðari hálfleik. Stuttu seinna var svo Gabby Agbonlahor vikið af velli.
,,Mér fannst við líta vel út. Markið frá Christan (Benteke) var í heimsklassa en brottvísunin gerði okkur erfitt um vik. Þetta var ekki rautt spjald, það sáu allir. Ashley Young sagði við Brad Guzan að hann hefði verið sá brotlegi, ekki Gabby." sagði Lambert.
Aston Villa situr í 12.sæti deildarinnar með 20 stig.
Athugasemdir