Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 21. janúar 2013 14:46
Magnús Már Einarsson
Bjarki Már í Selfoss (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Selfoss hefur fengið vinstri bakvörðinn Bjarka Má Benediktsson til liðs við sig á láni frá FH.

Bjarki Már hefur æft með Selfyssingum undanfarnar vikur og spilað með liðinu í Fótbolta.net mótinu.

Bjarki Már er fæddur árið 1993 en hann gekk upp úr öðrum flokki síðastliðið haust.

Á ferli sínum hefur Bjarki leikið með U17 og U19 ára landsliði Íslands en hann á ekki meistaraflokksleik að baki með FH-ingum.

Selfyssingar féllu úr Pepsi-deildinni síðastliðið haust en talsverðar breytingar hafa orðið á leikmannahópi liðsins í vetur.
Athugasemdir
banner