Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mán 21. janúar 2013 10:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Steven Gerrard vill ná Meistaradeildarsæti fyrir Luis Surez
Steven Gerrard og Luis Suarez.
Steven Gerrard og Luis Suarez.
Mynd: Getty Images
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, er ákveðinn í að hjálpa liðinu að ná í Meistaradeildarsæti til að minni líkur séu á að Luis Suarez yfirgefi félagið í sumar.

Gerrard segir að Suarez verðskuldi að spila í Meistaradeildinni og mikilvægt sé fyrir lið að ná sæti þar til að Úrúgvæinn óski ekki eftir að fara frá félaginu.

,,Vonandi getum við barist fyrir hann frá og með núna og til lok tímabils til að ná fjórða sætinu. Þá getum við tekið ákvörðunina fyrir hann," sagði Gerrard.

,,Hann einn veit hvar metnaður sinn og draumar liggja. Luis verðskuldar að spila í Meistaradeildinni, allir verða að viðurkenna það."

,,Fyrir utan Leo Messi og Cristiaon Ronaldo þá er hann jafngóður og allir leikmenn. Hann er líklega besti leikmaður sem ég hef spilað með og ég hef spilað með topp leikmönnum á ferli mínum."

Athugasemdir
banner
banner
banner