Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   sun 21. janúar 2018 15:25
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Chelsea hefur áhuga á Ashley Barnes
Carroll, Crouch og nú Ashley Barnes?
Ashley Barnes.
Ashley Barnes.
Mynd: Getty Images
Chelsea er í framherjaleit en samkvæmt Sky Sports er nýjasta skotmarkið Ashley Barnes sóknarmaður Burnley.

Svo virðist sem Antonio Conte sé að leita sér stórum og stæðilegum sóknarmanni sem gæti komið inn á seint í leikjum og náð að kreista fram eitt mark eða svo; svokallað plan B.

Chelsea hefur verið orðað við Andy Carroll, Peter Crouch, Edin Dzeko og Fernando Llorente í þessu mánuði.

Nú er Barnes kominn á óskalistann en hann hefur skorað þrjú mörk í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.

Chelsea er í þriðja sæti ensku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir
banner
banner