Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   sun 21. janúar 2018 15:43
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fótbolta.net mótið: Vestri hafði betur gegn Haukum
Pétur skoraði fyrra mark Vestra.
Pétur skoraði fyrra mark Vestra.
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
Haukar 0 - 2 Vestri
0-1 Pétur Bjarnason ('48)
0-2 Daníel Agnar Ásgeirsson ('58)

Haukar og Vestri áttust við í B-deild Fótbolta.net mótsins í Akraneshöllinni í dag.

Vestri hafði unnið einn leik og gert eitt jafntefli í mótinu fyrir leikinn í dag en þeir komust yfir á 48. mínútu þegar Pétur Bjarnason skilaði knettinum í netið.

Um 10 mínútum síðar skoraði Daníel Agnar Ásgeirsson og kom Vestra tveimur mörkum yfir.

Eftirleikurinn var auðveldur og lokatölur 2-0 fyrir Vestra sem er á toppi riðilsins með sjö stig. Haukar höfðu unnið eina leik sinn fyrir þennan leik, gegn Selfossi, og eru með þrjú stig.
Athugasemdir
banner
banner