Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 21. janúar 2018 18:59
Ívan Guðjón Baldursson
Javi Gracia tekinn við Watford (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Watford er búið að staðfesta ráðningu á nýjum knattspyrnustjóra til að taka við af Marco Silva.

Stjórinn heitir Javi Gracia, er 47 ára gamall og búinn að skrifa undir eins og hálfs árs samning við enska félagið.

Gracia hefur stýrt félögum á borð við Almeria og Malaga í spænska boltanum og hefur auk þess stýrt félögum í Grikklandi og Rússlandi.

Gracia kemur úr atvinnumennsku og gerði garðinn frægan fyrir Real Sociedad og Villarreal sem leikmaður.
Athugasemdir
banner
banner