Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 21. janúar 2018 11:00
Fótbolti.net
Kjarnafæðismótið: KA hefur skorað 25 mörk í þremur leikjum
Elfar Árni Aðalsteinsson hefur skorað tólf mörk í þremur leikjum.
Elfar Árni Aðalsteinsson hefur skorað tólf mörk í þremur leikjum.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
KA 12 - 0 Tindastóll
1-0 Elfar Árni Aðalsteinsson ('17)
2-0 Elfar Árni Aðalsteinsson ('36)
3-0 Elfar Árni Aðalsteinsson ('38)
4-0 Sæþór Olgeirsson ('49)
5-0 Sæþór Olgeirsson ('56)
6-0 Steinþór Freyr Þorsteinsson ('64)
7-0 Hrannar Björn Steingrímsson ('66)
8-0 Elfar Árni Aðalsteinsson ('69)
9-0 Bjarni Aðalsteinsson ('74)
10-0 Hallgrímur Mar Steingrímsson ('84)
11-0 Áki Sölvason ('87)
12-0 Elfar Árni Aðalsteinsson ('90)

Eftir stóra sigra gegn Magna og Völsungi var Tindastóll nýjasta fórnarlamb KA í Kjarnafæðismótinu í gær. KA vann 12-0 sigur og er liðið með markatöluna 25-2 eftir þrjá leiki. Elfar Árni Aðalsteinsson hefur skorað tólf mörk á mótinu.

KA menn tóku strax völdin í leiknum í gær en Stólarnir vörðust vel til að byrja með. Á 17. mínútu náði KA góðri sókn upp hægri vænginn sem endaði með flottri fyrirgjöf Steinþórs Freys Þorsteinssonar og óvaldaður Elfar Árni Aðalsteinsson hamraði boltann inn. Stuttu síðar björguðu Stólarnir á línu eftir að Daníel Hafsteinsson fékk færi í teignum.

Á 30. mínútu komst Steinþór einn í gegn eftir frábæra sendingu frá Hallgrími Jónassyni en Atli varði vel í marki Tindastóls. Á 36. mínútu kom svo annað mark KA eftir að Ólafur Aron átti skot utan teigs sem breytti um stefnu af Elfari og Atli var varnarlaus í markinu. Elfar fullkomnaði svo þrennuna eftir frábæra sókn þar sem Hallgrímur Mar vippaði boltanum inná Sæþór sem renndi honum á Elfar fyrir miðju marki og hann lagði boltann í netið. Sæþór fékk svo dauðafæri eftir frábæran sprett hjá Steinþóri en hann hitti ekki boltann. Staðan 3-0 í hálfleik, KA með 13 marktilraunir en Tindastóll enga.

Í seinni hálfleik opnuðust svo allar flóðgáttir og KA bætti við 9 mörkum. Elfar bætti við tveimur í sitt safn, Sæþór skoraði tvö, Steinþór, Hrannar Björn, Bjarni Aðalsteins, Hallgrímur Mar og Áki Sölva skoruðu allir eitt mark hver. Leikurinn var algjör einstefna í seinni hálfleik en Tindastóll átti þó eina skottilraun sem fór þó hátt yfir markið. KA liðið skaut hinsvegar 18 sinnum að marki Tindastóls í síðari hálfleik.

Það verður að segja eins og er að KA liðið lítur mjög vel út. Hrannar Björn og Steinþór frábærir á hægri vængnum, Hjörvar spennandi í vinstri bakverði með Hallgrím Mar síógnandi þar fyrir framan. Miðvarðarparið Guðmann og Hallgrímur Jónasson líta út fyrir að hafa spilað lengi saman og svo er Elfar óstöðvandi í teignum. Það verður spennandi að sjá liðið í Pepsideildinni í sumar.

Maður leiksins: Steinþór Freyr Þorsteinsson (KA)


Athugasemdir
banner
banner
banner