Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 21. febrúar 2017 11:43
Magnús Már Einarsson
Albert í liði vikunnar í Hollandi
Mynd: Getty Images
Albert Guðmundsson er í úrvalsliði vikunnar í hollensku B-deildinni hjá vefsíðunni Voetbal International.

Albert skoraði bæði mörkin þegar varaliði PSV Eindhoven sigraði aðalliði NAC Breda 2-0 í B-deildinni í gær.

Í Hollandi er varaliðum frjálst að taka þátt í deildakeppni en geta þó ekki leikið í sömu deild og aðalliðið. Varaliðið getur því ekki komist upp í efstu deild.

Albert hefur skorað sex mörk með varaliði PSV Eindhoven í B-deildinni í vetur.

Þessi 19 ára leikmaður lék sinn fyrsta A-landsleik í janúar þegar Ísland mætti Kína í vináttulandsleik.



Athugasemdir
banner
banner
banner