Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 21. febrúar 2017 17:00
Elvar Geir Magnússon
Blackburn búið að reka Owen Coyle
Owen Coyle er atvinnulaus.
Owen Coyle er atvinnulaus.
Mynd: Getty Images
Blackburn Rovers hefur rekið knattspyrnustjórann Owen Coyle en liðið er í 23. sæti Championship-deildarinnar, fimm stigum frá öruggu sæti.

„Þessi ákvörðun var tekin með það að leiðarljósi að liðið eigi sem bestan möguleika á að halda sér í deildinni. Það eru 15 mikilvægir leikir eftir og næsta verkefni er ferðalag til Burton Albion á föstudagskvöld," segir í yfirlýsingu frá Blackburn.

„Við þökkum Owen og hans starfsliði fyrir þeirra vinnu og óskum þeim alls hins besta fyrir framtíðina. Leitin að nýjum knattspyrnustjóra er þegar hafin"

Mikil ólga er í kringum Blackburn en þannig hefur það verið í mörg ár eins og fjallað var um í pistli sem birtist um helgina.

Mikil óánægja er með indverska eigendur félagsins og mótmæli verið skipulögð.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner