Gylfi Þór Sigurðsson telur að næstu sex leikir muni ákveða örlög Swansea í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.
Swansea hefur skotist upp úr fallsæti með þremur sigrum í síðustu fjórum leikjum undir stjórn Paul Clement.
Swansea hefur skotist upp úr fallsæti með þremur sigrum í síðustu fjórum leikjum undir stjórn Paul Clement.
„Hlutirnir líta betur út heldur en þeir gerðu fyrir fimm eða sex vikum. Við höfðum alltaf trú á að við gætum bjargað okkur frá falli en það er mikið eftir," sagði Gylfi.
Í mars mætir Swansea meðal annars Hull og Middlesbrough sem eru líka í fallbaráttunni.
„Núna veltur þetta á okkur. Það að fá stig í næstu leikjum verður mjög mikilvægt. Næstu sex leikir skera úr um það hvernig tímabilið okkar verður og við þurfum að halda ró og taka einn leik fyrir í einu," sagði Gylfi.
„Við viljum ná 40 stigum eins fljótt og hægt er en það er gott að það sé komið smá bil á milli okkar og þriggja neðstu liðanna."
Sex næstu leikir Swansea
25. feb Chelsea - Swansea
4. mars Swansea - Burnley
11. mars Hull - Swansea
18. mars Bournemouth - Swansea
1. apríl Swansea - Middlesbrough
4. apríl Swansea - Tottenham
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir