Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 21. febrúar 2017 19:00
Elvar Geir Magnússon
Martial: Ég elska Manchester United
Martial fagnar marki á Old Trafford.
Martial fagnar marki á Old Trafford.
Mynd: Getty Images
Frakkinn Anthony Martial, sóknarleikmaður Manchester United, sat fyrir svörum á fréttamannafundi í Frakklandi í dag. United mætir Saint-Etienne í Evrópudeildinni á morgun.

Martial hefur ekki náð því flugi sem vonast var eftir á þessu tímabili eftir lofandi frammistöðu á því síðasta.

„Á síðasta tímabili fékk ég að spila mikið, leik eftir leik. Nú nýt ég þess að spila og við þurfum bara að bíða," segir Martial sem er 21 árs.

„Ég elska þetta félag, ég elska Manchester United og stuðningsmennina. Ég hef fengið mikinn stuðning frá aðdáendum. Ég vil gleðja þá. Ég vil vera hjá þessu félagi eins lengi og mögulegt er."

En í hvaða stöðu vill Martial helst spila?

„Ég byrjaði sem fremsti sóknarmaður en hjá Monaco var ég notaður á vængnum. Svo lengi sem ég er á vellinum er ég sáttur. Ég legg mikið á mig og er umkringdur frábærum leikmönnum. Vonandi verður næsta tímabil betra."
Athugasemdir
banner
banner
banner