Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 21. febrúar 2017 15:13
Magnús Már Einarsson
Rooney og Shaw ekki með til Frakklands
Rooney æfði í dag.
Rooney æfði í dag.
Mynd: Getty Images
Wayna Rooney, fyrirliði Manchester United, snéri aftur til æfinga í dag eftir meiðsli.

Rooney hefur ekkert spilað síðan 1. febrúar vegna meiðsla.

Jose Mourinho, stjóri United, sagði um helgina að Rooney væri tæpur fyrir leikinn gegn Southampton í úrslitum enska deildabikarsins um næstu helgi.

Rooney verður ekki með gegn Saint-Etienne á morgun en hann er ekki í hópnum sem ferðast til Frakklands. United vann fyrri leikinn 3-0 og er með öll spil á hendi.

Luke Shaw er einnig skilinn eftir heima en hann er ekki í náðinni hjá Mourinho. Ander Herrera tekur út leikbann og þá eru Phil Jones og Matteo Darmian einnig fjarri góðu gamni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner