Fótboltabransinn er óútreiknanlegur og menn eru fljótir að skjótast upp á stjörnuhimininn, Gabriel Jesus er gott dæmi um það. En menn geta líka verið fljótir að falla í gleymskunnar dá. Football365 tók saman lista yfir tíu leikmenn sem við vorum öll búin að gleyma.
10. Kelechi Iheanacho - Hlutfallstölfræði hans í markaskorun fyrir Manchester City var aðdáunarverð. Svo mætti Gabriel Jesus á svæðið...
9. Ashley Fletcher - Kom til West Ham frá Man Utd síðasta sumar en hefur aðeins skorað 1 mark í 17 leikjum. Hefur spilað samtals 20 mínútur á árinu 2017.
8. Arouna Kone - Hefur mikið verið meiddur á tímabilinu en hefði líklega ekki spilað mikið fyrir Everton hvort sem er. Verður samningslaus í sumar.
7. Lys Mousset - Eddie Howe keypti þennan Frakka til Bournemouth en samtals hefur hann spilað 23 mínútur!
6. Ola Aina - Chelsea er í góðum málum í bakvarðastöðunum og ekkert pláss er fyrir hinn tvítuga Aina sem hefur leikið fyrir öll yngri landslið Englands. Leikið átta deildarmínútur á tímabilinu.
5. Ben Watson Fékk rautt spjald í fyrstu umferð og hefur aðeins spilað fimm leiki fyrir Watford eftir það.
4. Fraizer Campbell - Hefur ekki byrjað deildarleik með Crystal Palace á þessu tímabili. En gleymum því ekki að hann hefur leikið landsleik fyrir England!
3. Marko Grujic - Fyrstu kaup Jurgen Klopp. Hefur ekki sést í úrvalsdeildinni síðan í september. Meiðsli, erfið samkeppni og erfiðleikar við að aðlagast.
2. Shaun Maloney - Skotinn skoraði og lagði upp fyrir Hull í öðrum leik tímabilsins en ekkert hefur til hans spurst síðan í október.
Athugasemdir