Bojan Stefán Ljubicic er kominn aftur heim í Keflavík. Bojan hefur verið að æfa með Keflavík og er nú genginn í raðir félagsins.
Hinn 25 ára gamli Bojan Stefán lék 11 leiki með Fjölni í deild og bikar á síðasta tímabili, en áður en hann fór til Fjölnis fyrir síðasta tímabil var hann á mála í Safamýrinni hjá Fram.
Hann er hins vegar uppalinn suður með sjó í Keflavík en þar hefur hann skorað fimm mörk í 93 deildar og bikarleikjum.

Keflavík mun leika í Pepsi-deildinni í sumar eftir að hafa komist upp úr Inkasso-deildinni síðasta sumar.
Hann er aðeins annar leikmaðurinn sem Keflavík fær í vetur en hinn var Aron Freyr Róbertsson sem kom frá Grindavík.
Komnir:
Aron Freyr Róbertsson frá Grindavík
Bojan Stefán Ljubicic frá Fjölni
Farnir:
Samningslausir:
Aron Elís Árnason
Athugasemdir