Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 21. febrúar 2018 16:50
Elvar Geir Magnússon
Evrópukeppni unglingaliða: Gerrard stýrði Liverpool til sigurs gegn Man Utd
Ben Woodburn skoraði fyrra mark Liverpool.
Ben Woodburn skoraði fyrra mark Liverpool.
Mynd: Getty Images
Liverpool 2 - 0 Manchester United (U19)
1-0 Ben Woodburn
2-0 Rafael Camacho

Liverpool tók á móti Manchester United í dag í fyrri viðureign liðanna í Evrópukeppni U19 unglingaliða. Leikurinn fór fram á Prenton Park, heimavelli Tranmere.

Þjálfari U19 liðs Liverpool er enginn annar en Steven Gerrard og hjá United er það hinn sigursæli Nicky Butt sem heldur um stjórnartaumana en þeir mættust oft inni á fótboltavellinum á sínum tíma.

Sóknarmaðurinn efnilegi Ben Woodburn var með fyrirliðand Liverpool og hann skoraði með skalla eftir aðeins tíu mínútna leik. Spurningamerki má setja við markvörð Manchester United.

Bæði lið áttu skot í tréverkið fyrir hálfleik. Í seinni hálfleik jókst pressa Manchester United hægt og rólega en liðinu tókst ekki að reka smiðshöggið og Liverpool bætti við marki á 78. mínútu þegar hinn portúgalski Rafael Camacho skoraði með frábæru skoti. Sanngjarn sigur.

Liverpool er komið áfram og fær aðra enska viðureign í 8-liða úrslitum, þá verður mótherjinn Manchester City sem vann Inter eftir vítaspyrnukeppni í gær.
Athugasemdir
banner