Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 21. febrúar 2018 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ísland í dag - Lengjubikarinn í fullum gangi
Fjölnir tekur á móti Ólsurum í Egilshöll.
Fjölnir tekur á móti Ólsurum í Egilshöll.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er leikið í Lengjubikar karla- og kvenna á þessum flotta miðvikudegi. Lengjubikarinn er byrjaður að rúlla á fulli!

Fjölnir, sem varð Reykjavíkurmeistari fyrir stuttu, fær Víking Ó. í heimsókn í Egilshöllina. Þetta verður fyrsti leikur Ólsara en Fjölnismenn eru að fara í sinn annan leik.

Í fyrsta leik sínum gerði Fjölnir 2-2 jafntefli gegn Keflavík.

Svo klukkan 19:10 eigast Breiðablik og ÍBV við í Fífunni. Blikarnir hafa verið að spila vel á undirbúningstímabilinu og það er erfitt verkefni sem bíður Vestmannaeyinga í dag.

miðvikudagur 21. febrúar

Lengjubikar karla - A deild - Riðill 3
18:30 Fjölnir-Víkingur Ó. (Egilshöll) - Frestað

Lengjubikar kvenna - A-deild
19:10 Breiðablik-ÍBV (Fífan)
Athugasemdir
banner
banner
banner