Rashford gæti farið frá Man Utd í janúar - Davies hefur áhuga á að fara til Liverpool - Fer Kobel til Chelsea?
banner
   mið 21. febrúar 2018 21:11
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lengjubikar kvenna: Agla María stal senunni í stórsigri
Agla María heldur áfram að fara á kostum í græna búningnum.
Agla María heldur áfram að fara á kostum í græna búningnum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Anna Þonn
Breiðablik 8 - 0 ÍBV
1-0 Guðrún Gyða Haralz ('6)
2-0 Agla María Albertsdóttir ('33)
3-0 Sólveig Jóhannesdóttir Larsen ('36)
4-0 Agla María Albertsdóttir ('44)
5-0 Alexandra Jóhannsdóttir ('47)
6-0 Agla María Albertsdóttir ('63)
7-0 Guðrún Gyða Haralz ('69)
8-0 Agla María Albertsdóttir ('71)

Agla María Albertsdóttir stal senunni þegar Breiðablik valtaði yfir ÍBV í Lengjubikar kvenna í kvöld. Blikar halda áfram að ná í góð úrslit eftir að Agla María byrjaði að spila með liðinu.

Það var Guðrún Gyða Haralz sem gerði fyrsta mark Blika í kvöld er hún kom liðinu yfir á sjöttu mínútu. Næst var röðin komin að Öglu Maríu sem kom Blikum í 2-0.

Staðan var 4-0 í hálfleik fyrir Blika eftir mörk frá Sólveigu Jóhannesdóttur Larsen og Öglu María. Alexandra Jóhannsdóttir, fyrrum leikmaður Hauka, gerði fimmta markið áður en Agla María fullkomnaði þrennu sína.

Guðrún Gyða Haralz gerði annað mark sitt á 69. mínútu og stuttu seinna gerði Agla María fjórða mark sitt.

Lokatölur 8-0 fyrir Blika, en í fyrra endaði Breiðablik í öðru sæti Pepsi-deildar kvenna á meðan ÍBV var í því fimmta. Blikar eru með sex stig og markatöluna 11-1 eftir tvo leiki í Lengjubikarnum. Þetta va fyrsti leikur ÍBV sem fer ekki vel af stað.

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner