Huginn hefur samið við króatíska leikmanninn Nedo Eres um að leika með liðinu í 2. deildinni í sumar en hann kemur til félagsins frá Sindra.
Nedo skoraði átta mörk í 23 deildar og bikarleikjum þegar Sindri féll úr 2. deildinni í fyrra.
Nedo getur spilað á kanti og í fremstu víglínu en hann skoraði meðal annars þrennu í bikarleik gegn Hugin.
Huginn hefur einnig samið við hinn 17 ára gamla Kifah Moussa Mourad en hann kemur frá Leikni Fáskrúðsfirði.
Kifah er kantmaður sem spilaði með Hugin síðari hlutann á síðasta tímabili en þá skoraði hann tvö mörk í ellefu leikjum þegar liðið endaði í 5. sæti í 2. deildinni.

Leikmannamàl.
— Huginn FC (@HuginnFC) February 20, 2018
Króatíski framherjinn Nedo Eres hefur skrifað undir samning við Huginn og mun því spila á Seyðisfirði næsta sumar. Nedo lék með Sindra síðasta sumar og skoraði átta mörk í 23 leikjum í deild og bikar - þ.a. þrennu á móti okkur!#VelkominnNedo
Samningamál.@kifahm16 búinn að skrifa undir samning og spilar því með okkur næsta sumar. Kifah er okkur Seyðfirðingum vel kunnur eftir að hafa komið frá nágrönnum okkur á Fáskrúðsfirði á miðju sumri í fyrra. Hann spilaði 11 leiki & skoraði 2 mörk.#ÁframHuginn🐝
— Huginn FC (@HuginnFC) February 14, 2018
Athugasemdir