Sindri hefur fengið varnarmanninn Robertas Freidgeimas í sínar raðir frá Litháen.
Hinn 28 ára gamli Freidgeimas hefur spilað í úrvalsdeildinni í heimalandi sínu sem og með Ventspils í úrvalsdeildinni í Lettlandi.
Hinn 28 ára gamli Freidgeimas hefur spilað í úrvalsdeildinni í heimalandi sínu sem og með Ventspils í úrvalsdeildinni í Lettlandi.
Freidgeimas á að baki leiki í forkeppnum Meistara og Evrópudeildarinnar.
Árið 2014 spilaði hann með Ventspils gegn Malmö í forkeppni Meistaradeildarinnar en sænska félagið vann samanlagt 1-0.
Sindri féll úr 2. deildinni síðastliðið sumar en gamla kempan Sinisa Valdimar Kekic tók við þjálfun liðsins í sumar.
Athugasemdir