Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   lau 21. mars 2015 12:35
Arnar Geir Halldórsson
Busquets klár fyrir El Clasico
Þessum leiðist ekki að spila gegn Real Madrid
Þessum leiðist ekki að spila gegn Real Madrid
Mynd: Getty Images
Sergio Busquets gæti snúið aftur í lið Barcelona á morgun í stórleiknum gegn Real Madrid.

Busquets meiddist á ökkla í leik gegn Villarreal fyrr í mánuðinum og var um tíma óttast að hann yrði lengi frá.

Hann er nú búinn að jafna sig af meiðslunum og æfði með liðinu í gær og fyrradag. Hann gæti því snúið aftur í El Clasico.

Javier Mascherano hefur þó spilað frábærlega í fjarveru Busquets og alls óvíst hvort Luis Enrique færi hann aftur niður í varnarlínuna til að koma Busquets í byrjunarliðið.

Leikurinn fer fram á Nou Camp annaðkvöld klukkan 20.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner