Englandsmeistarar Manchester City fá West Bromwich Albion í heimsókn í fyrsta leik helgarinnar í enska boltanum.
Það hefur hvorki gengið né rekið hjá Man City upp á síðkastið og hefur liðið tapað fjórum af síðustu fimm leikjum sínum. Vonir liðsins að halda meistaratigninni eru orðnar að engu og aðeins eru fjögur stig niður í 5.sæti.
WBA hafa verið á ágætis róli síðan Tony Pulis tók við stjórnartaumunum en liðið er í 13.sæti með 33 stig.
Wilfried Bony fær tækifæri í byrjunarliðinu í dag en landi hans Yaya Toure er fjarverandi vegna meiðsla.
Byrjunarlið Man City:Hart, Zabaleta, Kompany (C), Mangala, Clichy, Navas, Fernando, Lampard, Silva, Bony, Aguero
Byrjunarlið WBA:Myhill, Dawson, McAuley, Olsson, Lescott, Baird, Morrison, Gardner, Fletcher, Sessegnon, Berahino.
Athugasemdir