Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 21. mars 2015 20:09
Brynjar Hafþórsson
England: West Ham með sigur á Sunderland
Sakho skoraði sigurmarkið í dag
Sakho skoraði sigurmarkið í dag
Mynd: Getty Images
West Ham 1 - 0 Sunderland
1-0 Diafra Sakho ('88 )

West Ham unnu eins marks sigur á Sunderland á Upton Park í síðasta leik dagsins í enska boltanum.

Leikurinn var í járnum lengst af enda hvorugt liðið sýnt mikil sóknartilþrif upp á síðkastið og var lítil breyting á því í dag. Diafra Sakho framherji West Ham náði hinsvegar að tryggja liðinu þrjú stig með góðu marki á 88. mínútu.

Sakho skoraði sitt 9 mark á tímabilinu með góðu skoti í fjærhornið eftir að Mark Noble kom boltanum til hans hægra megin í teignum.

Með sigrinum fór West Ham upp fyrir Stoke City sem að tapaði gegn Crystal Palace í dag og eru í 9 sæti. Sunderland hefði getað komist upp fyrir Aston Villa með stigi úr leiknum en sitja í 17. sæti eftir tapið í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner