Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 21. mars 2015 13:30
Arnar Geir Halldórsson
Felipe Anderson framlengir við Lazio
Felipe Anderson
Felipe Anderson
Mynd: Getty Images
Nýjasta stjarna ítalska boltans, Felipe Anderson, hefur endurnýjað samning sinn við Lazio.

Samningurinn er til ársins 2020 en Felipe Anderson hefur slegið í gegn í vetur og þá sérstaklega upp á síðkastið en hann er með 8 mörk og 7 stoðsendingar í síðustu ellefu leikjum.

Þessi 21 árs Brasilíumaður kom til Lazio sumarið 2013 frá Santos í heimalandinu.

Frammistaða Felipe Anderson hefur vakið heimsathygli og hefur hann meðal annars verið orðaður við Liverpool en nú er ljóst að verðmiðinn á kappanum hefur hækkað töluvert.
Athugasemdir
banner