Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 21. mars 2015 12:15
Arnar Geir Halldórsson
Hafþór Þrastarson í Fjarðabyggð (Staðfest)
Hafþór í leik með Haukum
Hafþór í leik með Haukum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hafþór Þrastarsson er genginn til liðs við Fjarðabyggð í 1.deildinni en hann kemur til félagsins frá Haukum.

Hafþór hefur verið að leita sér að nýju liði í vetur og æfði meðal annars með ÍBV og norsku 3.deildarliði.

Hann var í lykilhlutverki hjá Haukum í fyrra en þessi 25 ára varnarmaður hefur einnig leikið með FH, KA og Selfossi.

Hafþór mun væntanlega spila sinn fyrsta leik fyrir Fjarðabyggð í dag þegar liðið mætir Val í Lengjubikarnum.

Fjarðabyggð eru nýliðar í 1.deildinni og hafa unnið hörðum höndum að því að styrkja sig fyrir átökin en Hafþór er áttundi leikmaðurinn sem kemur til liðsins í vetur.
Athugasemdir
banner
banner