Leikurinn 13:30 á morgun
Lucas Leiva er mættur aftur til æfinga eftir fimm vikur frá vegna nárameiðsla en er líklega ekki tilbúinn til að byrja gegn Manchester United á morgun.
Mario Balotelli hefur jafnað sig eftir veikindi sem gerðu það að verkum að hann var ekki í hóp gegn Swansea á mánudag.
Mario Balotelli hefur jafnað sig eftir veikindi sem gerðu það að verkum að hann var ekki í hóp gegn Swansea á mánudag.
Angel Di Maria er tilbúinn í slaginn hjá United eftir eins leiks bann en Jonny Evans er enn í banni. Luke Shaw og Marcos Rojo gætu mætt aftur eftir meiðsli en hvorugur er þó klár í að byrja leikinn.
Á morgun er leikur Liverpool og Manchester United en flautað verður til leiks 13:30. Dómari leiksins verður Martin Atkinson.
Allir lesendur vita að þetta er leikur sem bæði lið þrá að vinna enda erkifjendur að mætast. Ekki skemmir mikilvægi leiksins fyrir en liðin eru í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti.
Á meðfylgjandi mynd má sjá líkleg byrjunarlið að mati Guardian.
Athugasemdir