Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 21. mars 2015 11:30
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Hlustaðu í beinni - 12:00 Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Louis van Gaal gegn Brendan Rodgers.
Louis van Gaal gegn Brendan Rodgers.
Mynd: Getty Images
Smelltu hér til að hlusta á X-ið FM 97,7 í beinni

Það er mikil tilhlökkun fyrir stórleik Liverpool og Manchester United sem fram fer á morgun sunnudag. Hitað verður upp fyrir þáttinn í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 í dag laugardag en þátturinn verður milli 12 og 14.

Elvar og Tómas fá Tryggva Pál Tryggvason af raududjoflarnir.is í heimsókn og þá verður skólastjórinn Magnús Þór Jónsson, stuðningsmaður Liverpool og sparkspekingur, á línunni.

Sett verður saman sameiginlegt lið úr líklegum byrjunarliðum.

Einnig verður rætt um El Clasico, viðureign Barcelona og Real Madrid, sem fram fer á sunnudagskvöld. Rætt verður við Mikael Marinó Rivera, stuðningsmann Real.

Þá verður landsliðshópurinn fyrir Kasakstan skoðaður.

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Athugasemdir
banner
banner