Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 21. mars 2015 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Pastore: Haldið áfram að tala illa um Zlatan
Zlatan Ibrahimovic
Zlatan Ibrahimovic
Mynd: Getty Images
Javier Pastore, leikmaður Paris Saint-Germain í Frakklandi, hvetur fjölmiðla í Frakklandi til þess að halda áfram að tala illa um liðsfélaga hans, Zlatan Ibrahimovic.

Sænski framherjinn er gagnrýndur harðlega í fjölmiðlum í Frakklandi þessa dagana eftir ummæli hans um Frakkland en hann kallaði landið skítaland en ummælin voru í kjölfar dómgæslu sem hallaði ansi mikið á Parísarliðið.

Hann ákvað að skora þrennu gegn Lorient í frönsku úrvalsdeildinni í gær þrátt fyrir slæma umfjöllun frá frönsku blöðunum og hvetur Pastore þá til þess að halda áfram að gagnrýna Zlatan, sem virðist þrífast á þessu.

,,Það er rétt að Zlatan hefur verið gagnrýndur en mér er sama ef þið haldið áfram að tala illa um hann því þá getur hann skorað fleiri þrennur," sagði Pastore.
Athugasemdir
banner
banner