Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 21. mars 2015 19:00
Brynjar Hafþórsson
Pochettino ánægður með Kane
Mynd: Getty Images
Mauricio Pochettino stjóri Tottenham var ánægður með markaskorarann Harry Kane eftir að hann setti þrennu gegn Leicester.

,,Að vera með framherja sem að skorar þrjú mörk er alltaf frábært. Ég er ánægður fyrir hönd hans og liðsins. Nú lítum við fram á við og höldum áfram,“ sagði Pochettino.

Harry Kane er nú orðinn markahæsti leikmaður deildarinnar með 19 mörk, einu fleira en Diego Costa leikmaður Chelsea.

Framherjinn öflugi var valinn í landsliðshóp Englendinga í fyrsta skipti nú í vikunni fyrir leikina gegn Lettlandi og Ítalíu og vona Englendingar að hann haldi áfram að raða inn mörkunum.
Athugasemdir
banner
banner