Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 21. mars 2015 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Stoke mun framlengja við Begovic í sumar
Mynd: Getty Images
Mark Hughes, knattspyrnustjóri Stoke City á Englandi, segir að gengið verði frá samningum við Asmir Begovic, markvörð liðsins, eftir tímabilið.

Jack Butland, varamarkvörður Stoke, skrifaði á dögunum undir framlengingu á samning sínum við félagið en félagið ætlar sér einnig að framlengja við Begovic.

Begovic hefur verið lykilmaður í liðinu undanfarin ár en Hughes býst við að félagið semji við hann eftir tímabilið.

,,Við munum setjast niður með Asmir í sumar. Hann vill einbeita sér að leikjunum núna og ég skil það vel. Það er í lagi okkar vegna," sagði Hughes.
Athugasemdir
banner
banner
banner