Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 21. mars 2017 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Petr Cech frá í mánuð
Mynd: Getty Images
Tékkneski markvörðurinn Petr Cech meiddist á kálfa í vandræðalegu 3-1 tapi gegn West Bromwich Albion um helgina.

David Ospina tekur við af Cech á milli stanganna og ver markið í næstu leikjum gegn Manchester City, West Ham, Crystal Palace og Middlesbrough.

Cech fór í læknisskoðun í gær og er áætlað að hann verði frá í mánuð.

Ospina hefur þótt standa sig vel í bikarleikjum með Arsenal, en kólumbíski markvörðurinn ætlar að yfirgefa félagið í sumar vegna of lítils spilatíma.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner