Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   þri 21. mars 2017 16:30
Elvar Geir Magnússon
Parma
Viðar Ari: Aron er náttúrulega Kani
Icelandair
Viðar æfir með landsliðinu fyrir leikinn gegn Kosóvó.
Viðar æfir með landsliðinu fyrir leikinn gegn Kosóvó.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hlutirnir hafa gerst hratt hjá Viðari Ara Jónssyni. Nýlega gekk hann í raðir Brann frá Fjölni og nú er hann valinn í A-landsliðið í fyrsta sinn í mótsleik. Viðar heillaði þjálfarana í æfingaleikjum í byrjun árs.

„Ég var staddur í æfingaferð með Brann á La Manga þegar ég fékk að vita að ég væri í landsliðshópnum. Ég ætlaði að fara að leggja mig en eftir að ég fékk símtalið fór ég bara beint í „gym-mið". Þetta voru mikil gleðitíðindi. Það er þvílíkur draumur að vera hluti af þessum hóp," segir Viðar.

„Þetta hefur verið mjög fljótt að gerast og síðustu vikur hafa verið virkilega „bissí" hjá mér. Ég tel mig vera kominn á rétta stað núna, hérna og úti. Þetta er allt á uppleið."

Fjölnismenn eru stoltir af því að eiga tvo fulltrúa í hópnum, Viðar og Aron Sigurðarson. „Fáum við RT fyrir FYRSTU A-landsliðmenn karla í mótsleik Í SÖGU FJÖLNIS,“ stóð á Twitter aðgangi Grafarvogsliðsins en Aron Jóhannsson svaraði því á léttu nótunum með orðunum „Illa vegið" en hann hefur leikið fyrir Bandaríkin á HM.

„Það var illa vegið að góðum Aroni. Hann er náttúrulega Kani, það er ekkert að marka það er það nokkuð?" sagði Viðar léttur en viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér ofan.

Fótbolti.net er með öflugt teymi í Hollandi og er hægt að fylgjast með öllu bak við tjöldin á Snapchat (Fotboltinet), á Instagram og öðrum samskiptamiðlum okkar.

Leikir Íslands á EM:
Ísland 0-1 Frakkland
Ísland 1-2 Sviss
Ísland 0-3 Austurríki
Athugasemdir
banner
banner
banner