„Þetta er leiðinleg umræða sem þú vilt ekki að sé um þig en þetta er mér að kenna," sagði Viðar Örn Kjartansson í viðtali við Fótbolta.net fyrir æfingu íslenska landsliðsins í Parma á Ítalíu í dag.
Talsverð umræða hefur verið um Viðar síðan á fréttamannafundi Íslands á föstudag en þar kom fram að hann hefði mætt ölvaður í flug frá Ísrael til Ítalíu þegar íslenska landsliðið var í æfingabúðum þar í nóvember.
„Það var ekki agabrot framið en þetta var mjög ófagmannleg framkoma hjá mér. Ég baðst afsökunar, við kláruðum þetta mál og förum að einbeita okkur að hlutum sem skipta máli eins og leiknum," sagði Viðar en hefur umræðan truflað hann?
„Þetta truflar alltaf smá. Þú vilt ekki að það sé verið að tala um svona hluti á þessum tímapunkti. Ég get sjálfum mér kennt. Núna horfi ég fram á við og einbeiti mér að Kosóvó."
Viðar hefur lengi beðið eftir að fá að byrja í mótsleik með landsliðinu. Hann vonast til að fá tækifærið gegn Kosóvó á föstudaginn í fjarveru Alfreðs Finnbogasonar og Kolbeins Sigþórssonar.
„Ég er alltaf klár í 90 mínútur en þjálfararnir velja þá 11 sem þeir halda að vinni leikinn fyrir okkur. Maður vonast alltaf til að fá að spila en þetta kemur í ljós," sagði Viðar.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Fótbolti.net er með öflugt teymi í Hollandi og er hægt að fylgjast með öllu bak við tjöldin á Snapchat (Fotboltinet), á Instagram og öðrum samskiptamiðlum okkar.
Leikir Íslands á EM:
Ísland 0-1 Frakkland
Ísland 1-2 Sviss
Ísland 0-3 Austurríki
Athugasemdir