Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 21. mars 2017 13:30
Magnús Már Einarsson
West Ham hefur áhuga á Rooney
Mynd: Getty Images
West Ham hefur áhuga á að fá Wayne Rooney í sínar raðir frá Manchester United í sumar. Sky Sports segist hafa heimildir fyrir þessu.

Rooney hefur verið í minna hlutverki hjá United á þessu tímabili heldur en áður.

Hinn 31 árs Rooney hefur byrjað níu leiki í ensku úrvalsdeildinni í vetur.

Talið er að Manchester United ætli að leyfa Rooney að róa á önnur mið í sumar og West Ham hefur áhuga á að reyna að fá hann í sínar raðir þá.

Í febrúar sýndu kínversku félögin Guangzhou Evergrande, Beijing Guoan og Jiangsu Suning öll áhuga á að fá Rooney í sínar raðir en á endanum ákvað hann að vera áfram hjá Manchester United.
Athugasemdir
banner
banner
banner