Ryan Bertrand vinstri bakvörður Southampton verður ekki með Englendingum þegar þeir mæta Ítölum og Hollendingum í vináttuleikjum á næstu dögum.
Bertrand hefur verið sendur aftur heim til Southampton í frekari rannsóknir.
Bertrand hefði getað spilað sinn 20. landsleik, en það verður að fá að bíða. Danny Rose og Ashley Young eru líklegastir til að taka stöðu vinstri bakvarðar í leikjunum gegn Ítalíu og Hollendingum.
Southampton hefur verið að „ströggla" í deildinni heima fyrir þrátt fyrir að komast í undanúrslit ensku bikarkeppninnar. Dýrlingarnir mæta þar Chelsea á Wembley.
Southampton er í 18. sæti ensku úrvalsdeildinnar, tveimur stigum frá West Ham og Crystal Palace sem sitja í sætunum fyrir ofan.
Vonandi fyrir Mark Hughes þjálfara Southampton og stuðningsmenn eru meiðsli Bertrand ekki alvarleg.
Athugasemdir