Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   mið 21. mars 2018 16:30
Magnús Már Einarsson
Deeney beið til að óska Liverpool mönnum til hamingju
Troy Deeney.
Troy Deeney.
Mynd: Getty Images
Troy Deeney, fyrirliði Watford, var ekki að drífa sig inn í klefa eftir 5-0 tap liðsins gegn Liverpool um síðustu helgi.

Deeney ákvað að bíða í leikmannagöngunum til að hitta á alla leikmenn og starfsmenn Liverpool, þakka þeim fyrir leikinn og hrósa þeim fyrir góða frammistöðu.

„Hann beið eftir öllum leikmönnunum þegar við komum inn," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool.

„Hann beið og tók í höndina á þeim öllum. Ég vissi ekki af þessu en hann beið, meira segja eftir mér."

Hér að neðan má sjá myndband af Deeney bíða í leikmannagöngunum eftir leik (byrjar á 8.50).
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner