Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 21. mars 2018 10:00
Magnús Már Einarsson
Fá að hringja frítt næst þegar Salah skorar
Salah hefur slegið í gegn hjá Liverpool.
Salah hefur slegið í gegn hjá Liverpool.
Mynd: Getty Images
Vodafone í Egyptalandi hefur ákveðið að gefa viðskiptavinum sínum gjöf næst þegar Mohamed Salah skorar fyrir Liverpool.

Salah hefur skorað 36 mörk í 41 leik á tímabilinu en hann er mjög vinsæll í heimalandi sínu Egyptalandi.

Næst þegar Salah skorar fá viðskiptavinir Vodafone í Egyptalandi ellefu fríar mínútur til að hringja.

Um er að ræða alla viðskiptavini Vodafone sem eru 43 milljónir í Egyptalandi. Samkvæmt verðskrá er þessi gjöf 100 milljóna punda virði hjá Vodafone í Egyptalandi.

Salah er sjálfur í samstarfi við Vodafone í Egyptalandi en hann hefur leikið í auglýsingum fyrir fyrirtækið.
Athugasemdir
banner
banner
banner