Manchester United er að skoða möguleika á að stofna kvennalið hjá félaginu.
Á fundi með stuðningsmönnum í vikunni greindi United frá því að félagið ætli að gefa nánari upplýsingar um málið í maí.
Á fundi með stuðningsmönnum í vikunni greindi United frá því að félagið ætli að gefa nánari upplýsingar um málið í maí.
United hefur fengið talsverða gagnrýni á Englandi fyrir að tefla eki fram kvennaliði á meðan Manchester City, Arsenal, Chelsea og Liverpool eru öll með kvennalið í toppbaráttunni á Englandi.
„Þetta er í skoðun hjá háttsettum aðilum hjá félaginu. Það að stofna kvennalið er hins vegar ekki eitthvað sem gerist á einni nóttu," sagði talsmaður United í vikunni.
Manchester United segir að ráða þurfi starfsfólk og finna æfingaaðstöðu fyrir liðið ef af verður og umfang verkefnisins er nú til skoðunar.
Athugasemdir