Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 21. mars 2018 11:43
Magnús Már Einarsson
Messi æfir hjá Real Madrid
Messi er að undirbúa sig fyrir HM.
Messi er að undirbúa sig fyrir HM.
Mynd: Getty Images
Lionel Messi, leikmaður Barcelona, mun í næstu viku æfa á æfingasvæðinu hjá erkifjendunum í Real Madrid.

Argentína mætir Spánverjum í vináttuleik á Wanda Metropolitano, heimavelli Atletico Madrid, í næstu viku.

Fyrir leikinn mun Argentína æfa á æfingasvæði Real Madrid. Messi hefur frá þrettán ára aldri verið á mála hjá erkifjendum Real í Barcelona.

Argentínska landsliðið spilar fyrst vináttuleik gegn Ítalíu í Manchester á föstudaginn og því er liðið á Englandi núna að undirbúa sig fyrir þann leik.

Messi og félagar í argentínska landsliðinu er að undirbúa sig fyrir HM í sumar en fyrsti leikurinn þar er einmitt gegn Íslandi þann 16. júní.
Athugasemdir
banner
banner