Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 21. mars 2018 12:30
Magnús Már Einarsson
Þjálfaranámskeið Real Madrid skólans á Íslandi
Mynd: Getty Images
Þjálfaranámskeið verður haldið samhliða Real Madrid skólanum sem fram fer á Íslandi 25. - 29. mars næstkomandi. Lögð verður áhersla á að þjálfa sóknarleik og kennarar eru spænskir þjálfarar úr Real Madrid skólanum.

Námskeiðið verður í Fífunni þriðjudaginn 27. mars kl. 17.00 - 19.00 og verður verklegt í 90 mínútur og fyrirlestur í 30 mínútur.

Námskeiðið kostar 5.000 krónur en félagsmenn KÞÍ greiða 2.000 krónur. Með þátttöku fást 3 endurmenntunarstig hjá KSÍ fyrir UEFA A og UEFA B þjálfara.

Skráning á námskeiðið fer fram hér.

Nánari upplýsingar gefur Daði Rafnsson í [email protected]
Athugasemdir
banner
banner