Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 21. apríl 2014 06:00
Magnús Már Einarsson
Æfingaleikur: Grótta vann í Þýskalandi
2.flokkur Gróttu og varalið Berolina Stralau eftir leikinn.
2.flokkur Gróttu og varalið Berolina Stralau eftir leikinn.
Mynd: .
Grótta er í æfingaferð í Berlín þessa dagana en um helgina sigraði liðið Berolina Stralau 7-1 eftir að hafa verið 2-0 yfir í hálfleik.

Mörk Gróttu skoruðu þeir Hermann Ármannsson (2), Hjörvar Hermannsson (2), Pétur Steinn Þorsteinsson, Halldór Hilmisson og Björn Axel Guðjónsson

Uppöldu Gróttumennirnir Jóhannes Hilmarsson og Sturlaugur Haraldsson leika báðir með liði Berolina og spiluðu leikinn í gær.

Fyrr um daginn lék 2. flokkur Gróttu við varalið Berolina og sigraði 8-1 með mörkum frá Ísaki Einarssyni (2), Degi Guðjónssyni, Bessa Jóhannssyni, Bjarna Rögnvaldssyni, Birni Valdimarssyni, Axeli Fannari Sveinssyni og Arnóri Guðjónssyni.
Athugasemdir
banner
banner
banner