Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mán 21. apríl 2014 11:00
Magnús Már Einarsson
Hazard ekki klár fyrir leikinn gegn Atletico?
Mynd: Getty Images
Eden Hazard tók ekki þátt í æfingu Chelsea í dag fyrir leikinn gegn Atletico Madrid annað kvöld.

Hazard meiddist á kálfa í síðari leiknum gegn Chelsea í 8-liða úrslitunum fyrir tæpum tveimur vikum.

Vonast var til að Hazard yrði klár í slaginn fyrir leikinn gegn Atletico á morgun en líkurnar á því virðast ekki miklar.

Chelsea heimsækir Atletico Madrid annað kvöld en í hinum undanúrslitaleiknum mætast Real Madrid og FC Bayern á miðvikudag.
Athugasemdir
banner
banner
banner